Styrkið mig!
Prófkjör kosta sitt og oft hefur aðgengi að peningum verið betra í íslensku samfélagi. Allir styrkir sem bjóðast eru því mjög vel þegnir.
Ég vil leggja mitt af mörkum til lýðræðislegri, gegnsærri stjórnmála og þeirrar stefnu að fjármál stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna skuli ekki vera leyndarmál viðkomandi. Þess vegna mun ég einungis taka við styrkjum frá einstaklingum, en hámarks styrktarupphæð á mann er 10.000 kr. Að prófkjöri loknu mun ég svo birta hér á síðunni nafnalista þeirra sem sjá sér fært að styrkja framboð mitt fjárhagslega, svo allt sé uppi á borðinu. Fólk getur styrkt mig af því það styður mig persónulega en líka styrkt mig til að sýna stuðning sinn við þessi vinnubrögð við fjáröflun. Mér finnst að þau eigi að vera framtíðin.
Til þess að leggja mér lið skal upphæðin lögð inn á reikning 0323-13-169654, kt 1909835449.
UPPFÆRT:
Þau sem hafa styrkt mig fjárhagslega eru eftirfarandi og kann ég þeim ævarandi þakkir fyrir. Þeim sem lögðu mér lið á annan hátt kann ég ekki síður þakkir.
Einar Örn Einarsson, Jón Þór Pétursson, Þóra Karitas Árnadóttir, Helena Pálsdóttir, Guðrún Jóna Jónsdóttir, Þórir Hrafn Gunnarsson, Guðlaugur Kristján Jörundsson, Hrafn Stefánsson, Dagný Ósk Aradóttir, Dagur B. Eggertsson, Þórður Sveinsson, Mörður Árnason, Sverrir Þórisson, Guðrún Birna le Sage de Fontenay, Sverrir Bollason.


