Mín pólitík
Ég er jafnaðarmaður. Af því leiðir beint að ég er femínisti sem vill að konur hafi sömu tækifæri og karlar og að ég er umhverfisverndarsinni af því mér finnst seinni kynslóðir eiga jafnan rétt á umhverfisgæðum og við sem núna lifum. Ég legg líka alla áherslu á menntamál sem besta tækið til að gefa fólki jöfn tækifæri. Í mínum stjórnmálaafskiptum á fyrri árum hef ég að auki lagt mikla áherslu á lýðræðis-, mannréttinda- og alþjóðamál. Það sem fékk mig til liðs við Samfylkinguna á sínum tíma, fyrir utan að mér fannst hún sá flokkur sem ætti besta möguleika á að láta félagshyggjuna verða að veruleika á Íslandi, var áhersla flokksins á lýðræðismál. Þetta er kjarninn í mér sem stjórnmálamanni.
Í kjölfar hrunsins í íslensku efnahagslífi finnst mér nauðsynlegt að ég komi inn í þingflokk Samfylkingarinnar með þann hóp ungs fólks í huga, sem vill mest af öllu fá að flýja land eða sér ekki annan kost í stöðunni. Þess vegna hef ég sérstaklega teiknað hér upp mikilvægustu málin sem snerta þetta unga fólk: Menntamál, húsnæðismál og atvinnumál. Einnig finnst mér virk þátttaka í alþjóðasamfélaginu grundvallaratriði í því að búa hér áfram. Og stærsta hagsmunamálið er Evrópusambandsaðild.
Lykillinn að því að ungt fólk búi áfram á Íslandi og taki þátt í að byggja upp er að við annars vegar getum búið hér. Hins vegar að við viljum búa hér. Ég vil fús búa á Íslandi og fara í gegnum erfiðleikana framundan ef það þýðir að við byggjum upp samfélag sem er sanngjarnara og jafnara og þar af leiðandi sterkara. Fyrir því vil ég beita mér á þingi.
Húsnæðismál | Menntamál | Atvinnumál
Fjölskyldumál | ESB | Alþjóðamál og fjölmenning


