Ungt fólk og Samfó

Föstudagur 6. mars 2009

Anna Dröfn, málefnastýra Ungra jafnaðarmanna, femínisti og snillingur, minnti mig á það í símann um hálftólfleytið að fara ekki of seint að sofa. Ég fylgist með blogginu þínu og sé hvað þú ert að gera, sagði hún jafnframt. En ég sný á hana með því að það er ekki klukka á þessu bloggi. Þurfti að vinna smá vinnu áður en ég fer að sofa - það er meira en segja það að bæta á sig eins og einu prófkjöri.

Á laugardaginn er svo framundan stórviðburður hjá okkur í UJ sem hefst kl. 12 í Iðnó. Ég er jafnaðarmaður var fyrst haldið í fyrra og heppnaðist snilldarvel. Núna ætlum við að fá eins marga að borðinu og hægt er til að hjálpast að við að hugsa um hvernig við getum haldið ungu fólki í þessu landi.

Og talandi um unga fólkið. Gallup-könnunin sem birtist í kvöld var alls ekki nógu góð fyrir Samfylkinguna í aldurshópnum undir þrítugu. Þar mælumst við með helming (já!) þess fylgis sem VG hefur og minna en Sjálfstæðisflokkurinn.

Ég er sannfærð um að við munum ná okkur upp og getum gert jafn góða hluti og Samfylkingin gerði í kosningunum 2003 gagnvart yngsta hópnum. En til þess er líka mikilvægt að flokkurinn sýni að hann treysti yngra fólki. Um daginn fundum við stuðningsmennirnir út að ég er eini frambjóðandinn undir fertugu í Reykjavíkurprófkjörinu. Af þessari ástæðu - einni af mörgum - er ég sannfærð um að Samfylkingin þurfi mig í þingsæti í Reykjavík.

Góða nótt!

Skilja eftir athugasemd