Til hamingju Brák!

Miðvikudagur 18. mars 2009

Ég er eins og stolt ungamamma að koma heim úr Borgarnesi. Brák - Ungir jafnaðarmenn í Borgarnesi er nú orðin að einni skrautfjöður í viðbót hjá okkur í UJ á landsvísu.

Hef eiginlega verið gjörsamlega á skallanum frá því klukkan ellefu á sunnudagsmorguninn. Í verkefnum fyrir Unga jafnaðarmenn og þess háttar, ekki brennivíni. Og NB var ég ekki einu sinni á skallanum á laugardagskvöldið. Uppgötvaði nú eftir miðnætti að ég hef ekki eina kvittunina sem ég þarf til að geta birt yfirlit yfir kostnað í prófkjörsbaráttunni hjá mér. Þarf að redda henni á morgun og tala við ykkur aftur. Gróft áætlað gætum við verið að tala um kannski 360.000 krónur samtals sem er nokkuð vel sloppið. Stærsti kostnaðarliðurinn er þessi sameiginlegi pottur frambjóðenda: 50.000 fyrir að taka þátt, 50.000 fyrir að vera með í sameiginlegri póstsendingu með efni frá frambjóðendum og svipuð upphæð í dreifiritið mitt sem fór í þá sendingu. Ég er búin að safna svolítið upp í þetta en er að vinna í því áfram og get því ekki birt yfirlit yfir velvildarfólk mitt alveg strax. Fylgist með.

Ein athugasemd við “Til hamingju Brák!”

  1. Ingi Segir:

    Er þetta persónukjörsblogg? á ekki að taka kosningablogg á þetta? =) annars þarf e´g að fara að un-bookmarka þessa síðu

Skilja eftir athugasemd