Sjáumst í Iðnó kl. 12 í dag, laugardag!

Laugardagur 7. mars 2009

Jæja. Hlakka mjög til að sjá öll í Iðnó kl. 12 á morgun, þau sem vettlingi geta valdið og öll hin. Sjálf hlakka ég sérstaklega til frumsýningar stuttmyndarinnar “Maðurinn sem varaði við” auk þess auðvitað að heyra fullt af ferskum hugmyndum þegar allt þetta unga fólk kemur saman til að hugsa.

Þetta var skemmtilegur dagur. Smá babb kom reyndar í bátinn eftir át á spirulina-þaratöflum sem munu eiga að auka manni þrek en fóru þveröfugt í frambjóðandann.

Ég fór á fund í spennandi nýstofnuðum starfshópi iðnaðarráðherra um atvinnumál stúdenta þar sem ég er formaður. Mjög krefjandi og mikilvægt verkefni að stuðla að því að fleiri stúdentar fái vinnu í sumar. Skrifa meira um það seinna og vil endilega heyra hugmyndir frá fólki í annapalas hjá gmail punktur com. Það sem við þurfum að gera er að velta öllum steinum við; nota hugmyndaflug, sköpunargáfu og verkvit til að gera mikið úr litlu í tímabundnum verkefnum auk þess sem við viljum auka möguleikana á að nýta tímann til að flýta sér í námi í sumar fyrir þau sem verða ekki að vinna.

Já og svo fór ég tvisvar í upptökur í dag - m.a. í Hugsprettu, þátt um nýsköpunarmál á ÍNN þar sem við Erla Ósk frambjóðandi hjá Sjálfstæðisflokknum ræddum nýsköpunarmál af svo miklum ákafa við þáttastjórnendurna Andra og Stefaníu að 25 mínútur liðu jafn hratt og 2 sekúndur. Ægilega gaman.

Skilja eftir athugasemd