Önnupálubarmmerkin - tímalaus klassík
Mánudagur 16. mars 2009
Það var skrýtið þegar laugardagskvöldið nálgaðist og ég átti að heyra úrslitin í prófkjöri. Spennan talsverð - seinnipart þessa lokadags í prófkjörinu var tilfinningin svipuð og þegar ég átti að keppa í Gettu betur í sjónvarpi í fyrsta skipti. Nema þá var málið klárað á einni klukkustund. Þetta tók lengri tíma og smá skapsveiflur sem fylgdu því að vera lengi framan af í áttunda sæti en detta niður í tíunda við síðustu tölur þegar blessuð pappírsatkvæðin höfðu verið talin. Hafði svosem búist við að þetta gæti gerst - ég er ung og á eftir að kynnast eldra fólkinu í flokknum. Næg tækifæri til þess framundan.
Uppgötvaði áðan að úrslit í prófkjöri voru birt þann 14. mars. Nákvæmlega mánuði fyrr eða 14. febrúar tók ég ákvörðun um að ég ætlaði í prófkjörið. Brá við þetta - mánuður er greinilega langur tími í pólitík. Líklega hefði verið betra fyrir framann að hafa ákveðið sig með lengri fyrirvara og plana vel baráttuna af því prófkjör er alveg ofsalega mikil vinna. Þá kem ég niður á flókið mál sem er togstreitan á milli þess að vilja taka þátt í pólitík og vera pólitíkus með öllu sem því fylgir. Ég veit ekki hvort fólk skilur muninn á þessu tvennu, eins og ég sjálf hef tilhneigingu til að flokka þetta og er ekki endilega rétt.
En ég hef nægan tíma til að pæla í þessu þegar kosningabaráttan er búin! Mjög spennt fyrir að hella mér í hana og undirbúningurinn er auðvitað löngu byrjaður jafnt hjá Ungum jafnaðarmönnum og Samfylkingunni. Vorum að fara aðeins í gegnum kosningabaráttuna hjá mér áðan, ég og Pétur Ólafsson klettur og fundum út að í fyrsta lagi nýtast barmmerkin mín sem tímalaus klassík af því á þeim stendur bara Anna Pála. Hins vegar nýtast dreifiritin mín líka af því ég sagðist vilja fimmta sætið og vil það ennþá ef það verður í boði! Fimmta sæti er baráttusæti Samfylkingarinnar í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og við höfum allt að vinna.
Að lokum vil ég segja frá því að á morgun birti ég yfirlit yfir kostnaðinn í þessu prófkjöri.
Svo vil ég segja þúsund þakkir við öll þau sem studdu mig á einhvern hátt.
- Efnisflokkur: Blogg


