Morguninn og orka í töfluformi
Miðvikudagur 4. mars 2009
Ég er í sannleika sagt svolítill nátthrafn. C-manneskja eins og Anna Pála móðursystir mín orðar það og segir að fylgi nafninu. Í Skipagötunni, þar sem amma bjó við Ráðhústorgið á Akureyri og var mikil félagsmiðstöð, var heldur yfirleitt ekki farið snemma að sofa.
Samt veit ég ekkert betra en að vera vöknuð snemma morguns og eiga heilan og ónotaðan dag framundan. Fyrstu mínúturnar eftir að ég rumska á ég reyndar til að vera frekar fúl á móti við sjálfa mig og ekki vilja fara á fætur og finnast allt frekar óspennandi. Þetta lagast samt á svona tíu mínútum eftir að ég fer á fætur. Ég á líka vin í baráttunni. Beint fyrir utan gluggann minn sem ég sef fyrir neðan, er stórt tré. Það má alltaf koma sér í gott skap með því að horfa aðeins á tréð og athuga hvaða litur er á himninum fyrir aftan það. Í morgun var hann ljósblár og sól á greinunum.
Og í morgun voru líka jákvæðar fréttir til að hressa mann við og minna á að við ætlum að ná okkur upp úr þessari blessuðu skuldahalasveppasúpu sem okkur Íslendingum var komið í. Svona fréttir eru eins og orka í töfluformi fyrir frambjóðandann sem er á haus í verkefnum nær allan sólarhringinn. Ég vil taka þátt í að skapa svona jákvæðar fréttir!
- Efnisflokkur: Blogg


