Lýðræðislegri fjáröflun

Föstudagur 27. febrúar 2009

Prófkjör kosta sitt og oft hefur aðgengi að peningum verið betra í íslensku samfélagi. Allir styrkir sem bjóðast eru því mjög vel þegnir.

Ég vil leggja mitt af mörkum til lýðræðislegri, gegnsærri stjórnmála og þeirrar stefnu að fjármál stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna skuli ekki vera leyndarmál viðkomandi. Þess vegna mun ég einungis taka við styrkjum frá einstaklingum, en hámarks styrktarupphæð á mann er 10.000 kr. Að prófkjöri loknu mun ég svo birta hér á síðunni nafnalista þeirra sem sjá sér fært að styrkja framboð mitt fjárhagslega, svo allt sé uppi á borðinu. Fólk getur styrkt mig af því það styður mig persónulega en líka styrkt mig til að sýna stuðning sinn við þessi vinnubrögð við fjáröflun. Mér finnst að þau eigi að vera framtíðin.

Til þess að leggja mér lið skal upphæðin lögð inn á reikning 0323-13-169654, kt 1909835449.

4 athugasemdir við “Lýðræðislegri fjáröflun”

  1. GH Segir:

    Frábært framtak. Fleiri ættu að gera þetta!

  2. Kristleifur Daðason Segir:

    Töff.

  3. Steinunn Segir:

    Ohh svona er að vera atvinnulaus nemi… annars væri ég 100% til í að styrkja þig fjárhagslega!

    Er einhver önnur leið fyrir þá sem lítið eiga milli handanna að hjálpa þér í kosningunum?

  4. annapala Segir:

    Já, það er sko nóg hægt að gera fyrir mig! Endilega hafðu samband í annapalas@gmail.com og við spjöllum um þetta.

Skilja eftir athugasemd