Fraubært
Föstudagur 13. mars 2009
Það er allt að gerast í prófkjörinu nú þegar sólarhringur er eftir! Ég hlakka til að heyra úrslitin annað kvöld - ekki laust við smávegis spennuskjálfta. Á þessum seinustu metrum datt ég loksins inn sem Eyjubloggari og þar má lesa þessa færslu, svo ég spari ykkur nú tennisúlnliðinn:
—
Já góðan daginn! Af einskærri tilviljun er loksins komið að sjálfri mér í þeirri löngu biðröð fólks sem vill skrifa Eyjublogg. Þetta er skemmtilegt í ljósi þess að daman er í prófkjöri sem klárast ekki fyrr en klukkan sex annað kveld.
Ég hef oft verið iðin við að blogga en af einhverjum ástæðum lagði ég þann starfa á hilluna í ágúst eftir að ég kom heim úr Palestínuferð. Bara nennti þessu ekki þegar ég dvaldi langdvölum í Kaupmannahöfn í haust. Var reyndar heima á milli og notaði tækifærið til að gerast spámaður í eigin föðurlandi. Segi betur frá Danmörkinni síðar - held ég sé að komast á bragðið aftur með að blogga nú þegar íslenskt raunveruleikasjokk er að breytast í íslenskan hversdagsleika.
Kíkið annars endilega á framapotssíðuna mína (innskot - hér var ég að tengja á síðuna sem þú ert að lesa núna, svo við skulum ekki fara í neinu hringi og sleppa hlekknum). Þetta er mjög flott síða og ég hef verið að blogga þar síðustu daga. Takk og bless, ég er farin að hringja í fólk til að athuga hvort það vill ekki kjósa mig í þessu prófkjöri.
- Efnisflokkur: Uncategorized



13.03.09 klukkan 17:43
Gangi þér vel, við þurfum ungt kraftmikið fólk á þing í bland við eldri og reyndari. Ég var að horfa á myndbandið og vil bara ráðleggja þér eitt, notaðu þagnir, þá verða áherslurnar áhrifaríkari
13.03.09 klukkan 22:17
Baráttukveðjur Anna Pála!
Við þurfum ekta félagshyggjukonu eins og þig á þing.
Allir að kjósa Önnu Pálu í 5. sætið!
13.03.09 klukkan 22:40
gangi þér vel frænka.við villi erum búin að kjósa á netinu.krossum fingur og vonum hið bezta.knús og kram.
-steinunn k.
13.03.09 klukkan 23:24
Tek undir með fólkinu hérna að ofan - við þurfum svo sannarlega unga og kraftmikla ekta félagshyggjukonu á þing!
Efast ekki um að þér og Samfylkingunni muni ganga vel á morgun og í kosningunum.