Starfsmaður í þjálfun
Þriðjudagur 7. apríl 2009
Ég endaði í fimmta sæti eftir allt saman - fimmta sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Svo ég get ekki kosið sjálfa mig en er í staðinn svo heppin að fá að kjósa Jóhönnu okkar.
Þetta sæti er náttúrulega baráttusætið. Það er séns að ég komist inn á Alþingi eftir tæpar þrjár vikur ef okkur gengur mjög vel. Mér finnst það dálítið skrýtin tilfinning. Var að spjalla við skemmtilegar stelpur í heimsókn í Kvennó og játaði fyrir þeim að ég yrði stundum hálfhrædd við þessa tilhugsun. Fólkið sem sest á Alþingi núna þarf að standa sig svo frábærlega vel. Ég myndi að sjálfsögðu leggja mig 120% fram, það er ekki málið. Og talandi um það - vinnuframlag á ýmsum vígstöðvum hefur verið vel ofan við 100% sem er ástæðan fyrir að þetta blogg ákvað að taka sér tímabundið veikindafrí.
Ég er að læra á þetta allt því ég hef aldrei tekið fullan þátt í kosningabaráttu á landsvísu, bara verið á kantinum. En í kringum mig er fullt af fólki hokið af reynslu og margt af því að læra. Kannski ætti ég að vera með skilti á brjóstinu eins og nýtt fólk í 10-11: “Starfsmaður í þjálfun”.
- Engar athugasemdir »
- Efnisflokkur: Blogg


