Þorbjörg

Fimmtudagur 5. mars 2009

obba

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur

Grétar

Fimmtudagur 5. mars 2009

gretar

Grétar Halldór Gunnarsson, Guðfræðingur

Eva

Fimmtudagur 5. mars 2009

eva

Eva Bjarnadóttir, stjórnmálafræðingur

Ellert

Fimmtudagur 5. mars 2009

ellert

Ellert B. Schram, alþingismaður

Dóra Sif

Fimmtudagur 5. mars 2009

dora_sif

Dóra Sif Tynes, héraðsdómslögmaður

Bjartur Logi

Fimmtudagur 5. mars 2009

bjartur_logi

Bjartur Logi Ye Shen, hagfræðingur

Ágústa

Fimmtudagur 5. mars 2009

agusta4

Ágústa Jóhannsdóttir, framhaldsskólakennari

Morguninn og orka í töfluformi

Miðvikudagur 4. mars 2009

Ég er í sannleika sagt svolítill nátthrafn. C-manneskja eins og Anna Pála móðursystir mín orðar það og segir að fylgi nafninu. Í Skipagötunni, þar sem amma bjó við Ráðhústorgið á Akureyri og var mikil félagsmiðstöð, var heldur yfirleitt ekki farið snemma að sofa.

Samt veit ég ekkert betra en að vera vöknuð snemma morguns og eiga heilan og ónotaðan dag framundan. Fyrstu mínúturnar eftir að ég rumska á ég reyndar til að vera frekar fúl á móti við sjálfa mig og ekki vilja fara á fætur og finnast allt frekar óspennandi. Þetta lagast samt á svona tíu mínútum eftir að ég fer á fætur. Ég á líka vin í baráttunni. Beint fyrir utan gluggann minn sem ég sef fyrir neðan, er stórt tré. Það má alltaf koma sér í gott skap með því að horfa aðeins á tréð og athuga hvaða litur er á himninum fyrir aftan það. Í morgun var hann ljósblár og sól á greinunum.

Og í morgun voru líka jákvæðar fréttir til að hressa mann við og minna á að við ætlum að ná okkur upp úr þessari blessuðu skuldahalasveppasúpu sem okkur Íslendingum var komið í. Svona fréttir eru eins og orka í töfluformi fyrir frambjóðandann sem er á haus í verkefnum nær allan sólarhringinn. Ég vil taka þátt í að skapa svona jákvæðar fréttir!

Fyrirspurn um Tíbet

Mánudagur 2. mars 2009

Þættinum hefur borist bréf. Það er svona:

Hvert er thitt alit a deilu Kinverja og Tibeta um yfirrad yfir Tibet og hvert er alit thitt a Dalai Lama, andlegum leidtoga Tibetbua sem vaentanlegur er i heimsokn til Islands.  Hvada augum litur thu a stjormalasamband Islands vid Kina?

Og hér kemur svarið mitt.

Góðan daginn! Ég hef lagt þónokkra vinnu í að halda málefnum Tíbets á lofti, þótt ég hafi ekki haft tök á að taka virkan þátt í vinnu Vina Tíbets.

1. Orðið deila er kannski ekki það sem á best við um ástandið í Tíbet frekar en það á við í Palestínu þótt maður noti það stundum. Hernám er mun nærri lagi enda réðust Kínverjar inn í Tíbet árið 1950 og hafa framið þar mannréttindabrot síðan.

2. Áhugaverð spurning. Sem persóna er hann auðvitað merkilegur. En þú ert kannski meira að velta fyrir þér stöðu hans. Ég veit að það er alveg ljóst að þegar Dalai Lama kemur til Íslands verða ekki viðhafðar sömu vafasömu aðgerðirnar og þegar Falun Gong komu hingað, a.m.k. ekki ef núverandi ríkisstjórn heldur áfram. Enda væri það fáránlegt. Maðurinn hefur frelsi til að koma hingað í friði eins og aðrir. Og mér finnst að hann eigi að fá að hitta stjórnvöld.

3. Almennt lít ég ekki á það sem lausn í alþjóðasamskiptum okkar Íslendinga að slíta stjórnmálasambandi við ríki sem fremja mannréttindabrot. Ég held að við eigum frekar að nota sambandið til að koma á framfæri skýrri afstöðu í þágu kúgaðra. Á það hefur skort í samskiptum Íslendinga og Kínverja. Ég var reyndar mjög ánægð þegar Björgvin G. Sigurðsson spurði út í málefni Tíbet, að mig minnir á fundi með kínverska viðskiptaráðherranum. Hann uppskar klukkutíma stressræðu um þetta mál. Hins vegar fannst mér að Þorgerður Katrín hefði t.d. ekki átt að vera við opnunarathöfnina á ÓL í Kína til að sýna í verki mótstöðu við mannréttindabrot. SUS hafði þrýst á að hún væri þar ekki og ég var hjartanlega sammála.

Að lokum koma hér tenglar á ýmislegt sem ég sjálf og aðrir félagar í UJ höfum gert í þágu Tíbet.

Þar sem ég þarf að hlaupa þegar þetta er skrifað, á fund, hef ég ekki tíma til að gera tenglana fína en laga þetta á eftir :-)

http://www.politik.is/2008/03/19/Bref-UJ-skilid-eftir-a-hurd-sendiherra-Kina/
http://www.vefritid.is/index.php/greinasafn/tad-sem-tu-tarft-ad-gera-fyrir-fertugt
http://www.visir.is/article/200880319046
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/19/afhenda_kinverskum_stjornvoldum_motmaelabref/
http://mbl.is/mm/myndasafn/detail.html?id=197622;leit=Ungir%20jafna%F0armenn;booltype=and;wordtype=exact;offset=0

Næsta færsla »