Þriðjudagur 17. mars 2009
Ég er á Kaffitár. Var mætt hérna uppúr hálfátta ásamt Vigdísi vinkonu samkvæmt plani um tilraunaviku þar sem dagarnir hefjast klukkan hálfátta í sameiginlegu kaffi. Nema ég tók mér óvart sæti “í Bláhorninu” eins og mér hefur verið bent á af u.þ.b. tíu herramönnum sem sitja hér allt í kringum mig sem er orðin ein eftir. Það var ákveðið að ég myndi ekki færa mig. Ég er svo hugguleg. Við erum að fara yfir hvernig ráðist hefur verið á íslensku krónuna.
-
Efnisflokkur: Uncategorized
Föstudagur 13. mars 2009
Það er allt að gerast í prófkjörinu nú þegar sólarhringur er eftir! Ég hlakka til að heyra úrslitin annað kvöld - ekki laust við smávegis spennuskjálfta. Á þessum seinustu metrum datt ég loksins inn sem Eyjubloggari og þar má lesa þessa færslu, svo ég spari ykkur nú tennisúlnliðinn:
—
Já góðan daginn! Af einskærri tilviljun er loksins komið að sjálfri mér í þeirri löngu biðröð fólks sem vill skrifa Eyjublogg. Þetta er skemmtilegt í ljósi þess að daman er í prófkjöri sem klárast ekki fyrr en klukkan sex annað kveld.
Ég hef oft verið iðin við að blogga en af einhverjum ástæðum lagði ég þann starfa á hilluna í ágúst eftir að ég kom heim úr Palestínuferð. Bara nennti þessu ekki þegar ég dvaldi langdvölum í Kaupmannahöfn í haust. Var reyndar heima á milli og notaði tækifærið til að gerast spámaður í eigin föðurlandi. Segi betur frá Danmörkinni síðar - held ég sé að komast á bragðið aftur með að blogga nú þegar íslenskt raunveruleikasjokk er að breytast í íslenskan hversdagsleika.
Kíkið annars endilega á framapotssíðuna mína (innskot - hér var ég að tengja á síðuna sem þú ert að lesa núna, svo við skulum ekki fara í neinu hringi og sleppa hlekknum). Þetta er mjög flott síða og ég hef verið að blogga þar síðustu daga. Takk og bless, ég er farin að hringja í fólk til að athuga hvort það vill ekki kjósa mig í þessu prófkjöri.
-
Efnisflokkur: Uncategorized
Fimmtudagur 12. mars 2009

Eva Kamilla Einarsdóttir, athafnakona
Fimmtudagur 12. mars 2009
Þessi færsla er ekki bara persónuleg auglýsing þess frambjóðanda sem þetta skrifar. Ég mæti það reyndar mikils ef margir kjósa sjálfa mig en vildi bara vekja athygli á því að góður meirihluti þeirra sem eru á kjörskrá hjá Samfylkingunni í prófkjöri á eftir að kjósa. Koma svo!
Annars er þetta fína myndband komið hér á hægri kantinn. Endilega hlusta á það. Ég hef sjálf þurft að gera það nokkrum sinnum. Alltaf sami aulahrollurinn að hlusta á sjálfa sig. Þess má geta að orðið skuldahalasveppasúpa var ekki í handritinu frekar en orðalag á mörgu sem þarna kemur fram. Fyrst tókum við eitt skot sem var í einu orði sagt hræðilegt fannst mér. Ég var stíf og stressuð, úr karakter að reyna að segja eitthvað sem ég hafði skrifað niður. Þökk sé dásamlegri konu tókst að koma mér til sjálfrar mín aftur og taka tvö gekk bara glimrandi.
Ef maður hefði nú alltaf tvær tökur í lífinu.
-
Efnisflokkur: Uncategorized
Mánudagur 9. mars 2009
Kapphlaupið er opinberlega hafið. Ég myndi reyndar frekar líkja þessu við boðhlaup þar sem liðsheildin skiptir máli, það er meira í anda jafnaðarmanna. Við þurfum að stilla upp sterkri heild sem verður lítið mál af því það er svo mikið af flottu fólk í framboði.
En semsagt: Þau sem eru á kjörskrá í Reykjavík geta frá og með núna kosið í netkosningunni. Ekki gleyma að kjósa elskurnar! Hérna eru leiðbeiningar um hvernig skal bera sig að.
Þegar þetta er skrifað sit ég á Kaffitár og gott ef ég er ekki búin að renna niður einum kaffi latte - aðalsmerki vinstrisinnaða umhverfissinnans sem þar að auki býr í 101 Reykjavík eins og stendur. Helga vinkona mín sem hringdi af miklum eldmóði í mögulega kjósendur í allan gærdag átti einmitt spjall um búsetumál mín við mann nokkurn. Hann taldi öll tormerki á því að kjósa frambjóðanda sem hefði valið að flytja nýlega í þetta mekka draumóranna og það hjálpaði lítið að Helga benti á mína mjög svo fjölbreyttu ferilskrá í búsetumálum. Vonum að hann hafi getað sofið vel á þessu.
-
Efnisflokkur: Uncategorized
Mánudagur 2. mars 2009
Þættinum hefur borist bréf. Það er svona:
Hvert er thitt alit a deilu Kinverja og Tibeta um yfirrad yfir Tibet og hvert er alit thitt a Dalai Lama, andlegum leidtoga Tibetbua sem vaentanlegur er i heimsokn til Islands. Hvada augum litur thu a stjormalasamband Islands vid Kina?
Og hér kemur svarið mitt.
Góðan daginn! Ég hef lagt þónokkra vinnu í að halda málefnum Tíbets á lofti, þótt ég hafi ekki haft tök á að taka virkan þátt í vinnu Vina Tíbets.
1. Orðið deila er kannski ekki það sem á best við um ástandið í Tíbet frekar en það á við í Palestínu þótt maður noti það stundum. Hernám er mun nærri lagi enda réðust Kínverjar inn í Tíbet árið 1950 og hafa framið þar mannréttindabrot síðan.
2. Áhugaverð spurning. Sem persóna er hann auðvitað merkilegur. En þú ert kannski meira að velta fyrir þér stöðu hans. Ég veit að það er alveg ljóst að þegar Dalai Lama kemur til Íslands verða ekki viðhafðar sömu vafasömu aðgerðirnar og þegar Falun Gong komu hingað, a.m.k. ekki ef núverandi ríkisstjórn heldur áfram. Enda væri það fáránlegt. Maðurinn hefur frelsi til að koma hingað í friði eins og aðrir. Og mér finnst að hann eigi að fá að hitta stjórnvöld.
3. Almennt lít ég ekki á það sem lausn í alþjóðasamskiptum okkar Íslendinga að slíta stjórnmálasambandi við ríki sem fremja mannréttindabrot. Ég held að við eigum frekar að nota sambandið til að koma á framfæri skýrri afstöðu í þágu kúgaðra. Á það hefur skort í samskiptum Íslendinga og Kínverja. Ég var reyndar mjög ánægð þegar Björgvin G. Sigurðsson spurði út í málefni Tíbet, að mig minnir á fundi með kínverska viðskiptaráðherranum. Hann uppskar klukkutíma stressræðu um þetta mál. Hins vegar fannst mér að Þorgerður Katrín hefði t.d. ekki átt að vera við opnunarathöfnina á ÓL í Kína til að sýna í verki mótstöðu við mannréttindabrot. SUS hafði þrýst á að hún væri þar ekki og ég var hjartanlega sammála.
Að lokum koma hér tenglar á ýmislegt sem ég sjálf og aðrir félagar í UJ höfum gert í þágu Tíbet.
Þar sem ég þarf að hlaupa þegar þetta er skrifað, á fund, hef ég ekki tíma til að gera tenglana fína en laga þetta á eftir
http://www.politik.is/2008/03/19/Bref-UJ-skilid-eftir-a-hurd-sendiherra-Kina/
http://www.vefritid.is/index.php/greinasafn/tad-sem-tu-tarft-ad-gera-fyrir-fertugt
http://www.visir.is/article/200880319046
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/19/afhenda_kinverskum_stjornvoldum_motmaelabref/
http://mbl.is/mm/myndasafn/detail.html?id=197622;leit=Ungir%20jafna%F0armenn;booltype=and;wordtype=exact;offset=0
-
Efnisflokkur: Uncategorized