Prófkjör

Föstudagur 27. febrúar 2009

Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík hefst 9. mars og lýkur 14. mars. Kjörið fer fram á internetinu og því mögulegt að kjósa hvar sem er, svo lengi sem tölva, nettenging og aðgangur að heimabanka eru til staðar. Hefðbundinn kjörstaður verður í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. Kjörstaður verður opinn 9. - 13. mars kl. 14.00 - 20.00. Laugardaginn 14. mars verður opið kl. 9.00 - 18.00. Gert er ráð fyrir að fyrstu tölur verði kunngjörðar fljótlega uppúr kl. 18.00.

Sjá nánar á vef Samfylkingarinnar.

Partý fyrir Önnu Pálu

Laugardagur 21. febrúar 2009

Vinir og stuðningsmenn Önnu Pálu efna til skemmtilegrar samkomu á Kaffi Kúltúra á morgun, laugardag, kl. 21:00.

Okkur þætti gaman að sjá þig - og að sjálfsögðu er þér velkomið að taka með þér góða vini (ekki verra ef þeir teljast gott jafnaðarfólk!).

Nú er tíminn til að sýna stuðning í verki, hitta aðra og spjalla um góð málefni og hvernig er best að koma þeim á framfæri. Framundan er mikil barátta, og mikilvægt að tryggja að besta fólkið komist að til að stjórna landinu.

Frír bjór í boði á meðan endist (allir að mæta snemma!)

Við hlökkum til að sjá þig!

Kveðja
Stuðningsmenn Önnu Pálu