Þriðjudagur 7. apríl 2009
Ég endaði í fimmta sæti eftir allt saman - fimmta sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Svo ég get ekki kosið sjálfa mig en er í staðinn svo heppin að fá að kjósa Jóhönnu okkar.
Þetta sæti er náttúrulega baráttusætið. Það er séns að ég komist inn á Alþingi eftir tæpar þrjár vikur ef okkur gengur mjög vel. Mér finnst það dálítið skrýtin tilfinning. Var að spjalla við skemmtilegar stelpur í heimsókn í Kvennó og játaði fyrir þeim að ég yrði stundum hálfhrædd við þessa tilhugsun. Fólkið sem sest á Alþingi núna þarf að standa sig svo frábærlega vel. Ég myndi að sjálfsögðu leggja mig 120% fram, það er ekki málið. Og talandi um það - vinnuframlag á ýmsum vígstöðvum hefur verið vel ofan við 100% sem er ástæðan fyrir að þetta blogg ákvað að taka sér tímabundið veikindafrí.
Ég er að læra á þetta allt því ég hef aldrei tekið fullan þátt í kosningabaráttu á landsvísu, bara verið á kantinum. En í kringum mig er fullt af fólki hokið af reynslu og margt af því að læra. Kannski ætti ég að vera með skilti á brjóstinu eins og nýtt fólk í 10-11: “Starfsmaður í þjálfun”.
Miðvikudagur 18. mars 2009
Ég er eins og stolt ungamamma að koma heim úr Borgarnesi. Brák - Ungir jafnaðarmenn í Borgarnesi er nú orðin að einni skrautfjöður í viðbót hjá okkur í UJ á landsvísu.
Hef eiginlega verið gjörsamlega á skallanum frá því klukkan ellefu á sunnudagsmorguninn. Í verkefnum fyrir Unga jafnaðarmenn og þess háttar, ekki brennivíni. Og NB var ég ekki einu sinni á skallanum á laugardagskvöldið. Uppgötvaði nú eftir miðnætti að ég hef ekki eina kvittunina sem ég þarf til að geta birt yfirlit yfir kostnað í prófkjörsbaráttunni hjá mér. Þarf að redda henni á morgun og tala við ykkur aftur. Gróft áætlað gætum við verið að tala um kannski 360.000 krónur samtals sem er nokkuð vel sloppið. Stærsti kostnaðarliðurinn er þessi sameiginlegi pottur frambjóðenda: 50.000 fyrir að taka þátt, 50.000 fyrir að vera með í sameiginlegri póstsendingu með efni frá frambjóðendum og svipuð upphæð í dreifiritið mitt sem fór í þá sendingu. Ég er búin að safna svolítið upp í þetta en er að vinna í því áfram og get því ekki birt yfirlit yfir velvildarfólk mitt alveg strax. Fylgist með.
Mánudagur 16. mars 2009
Það var skrýtið þegar laugardagskvöldið nálgaðist og ég átti að heyra úrslitin í prófkjöri. Spennan talsverð - seinnipart þessa lokadags í prófkjörinu var tilfinningin svipuð og þegar ég átti að keppa í Gettu betur í sjónvarpi í fyrsta skipti. Nema þá var málið klárað á einni klukkustund. Þetta tók lengri tíma og smá skapsveiflur sem fylgdu því að vera lengi framan af í áttunda sæti en detta niður í tíunda við síðustu tölur þegar blessuð pappírsatkvæðin höfðu verið talin. Hafði svosem búist við að þetta gæti gerst - ég er ung og á eftir að kynnast eldra fólkinu í flokknum. Næg tækifæri til þess framundan.
Uppgötvaði áðan að úrslit í prófkjöri voru birt þann 14. mars. Nákvæmlega mánuði fyrr eða 14. febrúar tók ég ákvörðun um að ég ætlaði í prófkjörið. Brá við þetta - mánuður er greinilega langur tími í pólitík. Líklega hefði verið betra fyrir framann að hafa ákveðið sig með lengri fyrirvara og plana vel baráttuna af því prófkjör er alveg ofsalega mikil vinna. Þá kem ég niður á flókið mál sem er togstreitan á milli þess að vilja taka þátt í pólitík og vera pólitíkus með öllu sem því fylgir. Ég veit ekki hvort fólk skilur muninn á þessu tvennu, eins og ég sjálf hef tilhneigingu til að flokka þetta og er ekki endilega rétt.
En ég hef nægan tíma til að pæla í þessu þegar kosningabaráttan er búin! Mjög spennt fyrir að hella mér í hana og undirbúningurinn er auðvitað löngu byrjaður jafnt hjá Ungum jafnaðarmönnum og Samfylkingunni. Vorum að fara aðeins í gegnum kosningabaráttuna hjá mér áðan, ég og Pétur Ólafsson klettur og fundum út að í fyrsta lagi nýtast barmmerkin mín sem tímalaus klassík af því á þeim stendur bara Anna Pála. Hins vegar nýtast dreifiritin mín líka af því ég sagðist vilja fimmta sætið og vil það ennþá ef það verður í boði! Fimmta sæti er baráttusæti Samfylkingarinnar í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og við höfum allt að vinna.
Að lokum vil ég segja frá því að á morgun birti ég yfirlit yfir kostnaðinn í þessu prófkjöri.
Svo vil ég segja þúsund þakkir við öll þau sem studdu mig á einhvern hátt.
Þriðjudagur 10. mars 2009
Ég er lasin í dag og ekki sérstaklega ánægð með þá stöðu mála! Þurfti að afboða mig á skemmtilega og mikilvæga fundi í Háskóla Íslands og í kosningamiðstöðinni okkar niðri á Skólabrú. Ég sem hef ekki orðið lasin í svo langan tíma. En þetta er svona. Tók reyndar marga símafundi í dag, litla og stóra og ég held að símtækið sé orðið jafn þreytt og ég sjálf þegar þetta er skrifað klukkan hálfellefu.
Annars er sagan af þessu símtæki frekar skemmtileg. Einu sinni sem oftar hvarf farsíminn minn um daginn (þeim hefur verið stolið af mér áður eða týnst - þessi varð eftir í sætisvasa í flugvél og skilaði sér ekki aftur). Ég var ennþá að bíða eftir námslánum haustannar. Þau skiluðu sér um miðjan febrúar, takk fyrir! Þetta þýddi að um það leyti sem ég tók ákvörðun um framboð var ég að fara yfir um af fjárhagsáhyggjum. Ekki við LÍN að sakast svosem, heldur var ástæðan að ég var í skiptinámi við Kaupmannahafnarháskóla í haust og skriffinnska tók langan tíma. En þetta gerði semsagt að verkum að ég er mjög heit í því máli að námslán þurfi að greiða út mánaðarlega og afnema yfirdráttarkúltúrinn.
Allavega - sagan af símanum. Mín kæra vinkona Dagga lánaði mér gamla símann sinn. Hún fór vel yfir með mér að hann væri nú orðinn gamall í hettunni og gæti átt til að láta illa en myndi duga mér í einhverja daga. Við rifjuðum upp söguna af því þegar Dagga sendi tölvupóst þar sem hún sat á Gatwick-flugvelli í London og hafði orðið fyrir því óhappi að missa umræddan síma í klósettið. Ég orgaði af hlátri yfir þessum tölvupósti. En það er skemmst frá því að segja að þessi sími var þurrkaður, hreinsaður og notaður og hefur staðið sig með eindæmum vel í baráttunni.
Laugardagur 7. mars 2009
Jæja. Hlakka mjög til að sjá öll í Iðnó kl. 12 á morgun, þau sem vettlingi geta valdið og öll hin. Sjálf hlakka ég sérstaklega til frumsýningar stuttmyndarinnar “Maðurinn sem varaði við” auk þess auðvitað að heyra fullt af ferskum hugmyndum þegar allt þetta unga fólk kemur saman til að hugsa.
Þetta var skemmtilegur dagur. Smá babb kom reyndar í bátinn eftir át á spirulina-þaratöflum sem munu eiga að auka manni þrek en fóru þveröfugt í frambjóðandann.
Ég fór á fund í spennandi nýstofnuðum starfshópi iðnaðarráðherra um atvinnumál stúdenta þar sem ég er formaður. Mjög krefjandi og mikilvægt verkefni að stuðla að því að fleiri stúdentar fái vinnu í sumar. Skrifa meira um það seinna og vil endilega heyra hugmyndir frá fólki í annapalas hjá gmail punktur com. Það sem við þurfum að gera er að velta öllum steinum við; nota hugmyndaflug, sköpunargáfu og verkvit til að gera mikið úr litlu í tímabundnum verkefnum auk þess sem við viljum auka möguleikana á að nýta tímann til að flýta sér í námi í sumar fyrir þau sem verða ekki að vinna.
Já og svo fór ég tvisvar í upptökur í dag - m.a. í Hugsprettu, þátt um nýsköpunarmál á ÍNN þar sem við Erla Ósk frambjóðandi hjá Sjálfstæðisflokknum ræddum nýsköpunarmál af svo miklum ákafa við þáttastjórnendurna Andra og Stefaníu að 25 mínútur liðu jafn hratt og 2 sekúndur. Ægilega gaman.
Föstudagur 6. mars 2009
Anna Dröfn, málefnastýra Ungra jafnaðarmanna, femínisti og snillingur, minnti mig á það í símann um hálftólfleytið að fara ekki of seint að sofa. Ég fylgist með blogginu þínu og sé hvað þú ert að gera, sagði hún jafnframt. En ég sný á hana með því að það er ekki klukka á þessu bloggi. Þurfti að vinna smá vinnu áður en ég fer að sofa - það er meira en segja það að bæta á sig eins og einu prófkjöri.
Á laugardaginn er svo framundan stórviðburður hjá okkur í UJ sem hefst kl. 12 í Iðnó. Ég er jafnaðarmaður var fyrst haldið í fyrra og heppnaðist snilldarvel. Núna ætlum við að fá eins marga að borðinu og hægt er til að hjálpast að við að hugsa um hvernig við getum haldið ungu fólki í þessu landi.
Og talandi um unga fólkið. Gallup-könnunin sem birtist í kvöld var alls ekki nógu góð fyrir Samfylkinguna í aldurshópnum undir þrítugu. Þar mælumst við með helming (já!) þess fylgis sem VG hefur og minna en Sjálfstæðisflokkurinn.
Ég er sannfærð um að við munum ná okkur upp og getum gert jafn góða hluti og Samfylkingin gerði í kosningunum 2003 gagnvart yngsta hópnum. En til þess er líka mikilvægt að flokkurinn sýni að hann treysti yngra fólki. Um daginn fundum við stuðningsmennirnir út að ég er eini frambjóðandinn undir fertugu í Reykjavíkurprófkjörinu. Af þessari ástæðu - einni af mörgum - er ég sannfærð um að Samfylkingin þurfi mig í þingsæti í Reykjavík.
Góða nótt!
Miðvikudagur 4. mars 2009
Ég er í sannleika sagt svolítill nátthrafn. C-manneskja eins og Anna Pála móðursystir mín orðar það og segir að fylgi nafninu. Í Skipagötunni, þar sem amma bjó við Ráðhústorgið á Akureyri og var mikil félagsmiðstöð, var heldur yfirleitt ekki farið snemma að sofa.
Samt veit ég ekkert betra en að vera vöknuð snemma morguns og eiga heilan og ónotaðan dag framundan. Fyrstu mínúturnar eftir að ég rumska á ég reyndar til að vera frekar fúl á móti við sjálfa mig og ekki vilja fara á fætur og finnast allt frekar óspennandi. Þetta lagast samt á svona tíu mínútum eftir að ég fer á fætur. Ég á líka vin í baráttunni. Beint fyrir utan gluggann minn sem ég sef fyrir neðan, er stórt tré. Það má alltaf koma sér í gott skap með því að horfa aðeins á tréð og athuga hvaða litur er á himninum fyrir aftan það. Í morgun var hann ljósblár og sól á greinunum.
Og í morgun voru líka jákvæðar fréttir til að hressa mann við og minna á að við ætlum að ná okkur upp úr þessari blessuðu skuldahalasveppasúpu sem okkur Íslendingum var komið í. Svona fréttir eru eins og orka í töfluformi fyrir frambjóðandann sem er á haus í verkefnum nær allan sólarhringinn. Ég vil taka þátt í að skapa svona jákvæðar fréttir!
Laugardagur 28. febrúar 2009
Í dag, laugardag, eru síðustu forvöð til þess að skrá sig í
Samfylkinguna og öðlast kosningarétt í prófkjörinu í Reykjavík!
Mér finnst eiginlega eins og það séu þrír mánuðir síðan ég byrjaði að segja fólkinu mínu og flokksmönnum að ég ætlaði í prófkjörið. En það eru bara tæpar tvær vikur. Síðan þá hef ég verið á útopnu út um allt, annars vegar vegna framboðsins en hins vegar vegna starfsskyldna sem formaður UJ á landsvísu. Ég má ekki klikka á þeim út af einhverju persónulegu framapoti.
Í þessa viku frá því ég lýsti yfir framboðinu hef ég talað við fullt af fólki og fengið fín viðbrögð úr líklegum og ólíklegum áttum. Takk öll sem eruð að hjálpa mér! Auðvitað er ég samt stressuð líka af því það er svo mikið af sterku fólki í framboði.
Mikið af fólki heyri ég líka að sé að ganga í Samfylkinguna þessa dagana. Það fólk bætist við þá um 7000 sem eru skráðir í Samfylkinguna í Reykjavík í dag. Stuðningsmenn verða að skrá sig fyrir miðnætti. Þeir geta þá valið
milli mín og margra annara frábærra frambjóðenda sem eru skv.
heimasíðu Samfylkingarinnar meðal annars:
Björgvin Valur Guðmundsson, leiðbeinandi
Dofri Hermannsson, varaborgarfulltrúi
Jón Baldvin Hannibalsson, fv. sendiherra
Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur
Sigríður Arnardóttir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur
Skúli Helgason, fv. framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar
Sverrir Jensson
Valgerður Bjarnadóttir
Og að lokum auðvitað JÓbama og Ingibjörg Sólrún. Þær komu upp á Grand Hótel áðan þar sem við vorum að vinna í hópum fyrir landsfundinn og voru bara flottastar. Jóhanna forsætisráðherra og Solla formaður: Í sitt hvoru lagi geta þessar konur flutt fjöll en í sameiningu veit ég ekki alveg hvaða líkingu ég á að nota - hugmyndir?
Föstudagur 27. febrúar 2009
Prófkjör kosta sitt og oft hefur aðgengi að peningum verið betra í íslensku samfélagi. Allir styrkir sem bjóðast eru því mjög vel þegnir.
Ég vil leggja mitt af mörkum til lýðræðislegri, gegnsærri stjórnmála og þeirrar stefnu að fjármál stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna skuli ekki vera leyndarmál viðkomandi. Þess vegna mun ég einungis taka við styrkjum frá einstaklingum, en hámarks styrktarupphæð á mann er 10.000 kr. Að prófkjöri loknu mun ég svo birta hér á síðunni nafnalista þeirra sem sjá sér fært að styrkja framboð mitt fjárhagslega, svo allt sé uppi á borðinu. Fólk getur styrkt mig af því það styður mig persónulega en líka styrkt mig til að sýna stuðning sinn við þessi vinnubrögð við fjáröflun. Mér finnst að þau eigi að vera framtíðin.
Til þess að leggja mér lið skal upphæðin lögð inn á reikning 0323-13-169654, kt 1909835449.