Starfsmaður í þjálfun

Þriðjudagur 7. apríl 2009

Ég endaði í fimmta sæti eftir allt saman - fimmta sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Svo ég get ekki kosið sjálfa mig en er í staðinn svo heppin að fá að kjósa Jóhönnu okkar.

Þetta sæti er náttúrulega baráttusætið. Það er séns að ég komist inn á Alþingi eftir tæpar þrjár vikur ef okkur gengur mjög vel. Mér finnst það dálítið skrýtin tilfinning. Var að spjalla við skemmtilegar stelpur í heimsókn í Kvennó og játaði fyrir þeim að ég yrði stundum hálfhrædd við þessa tilhugsun. Fólkið sem sest á Alþingi núna þarf að standa sig svo frábærlega vel. Ég myndi að sjálfsögðu leggja mig 120% fram, það er ekki málið. Og talandi um það - vinnuframlag á ýmsum vígstöðvum hefur verið vel ofan við 100% sem er ástæðan fyrir að þetta blogg ákvað að taka sér tímabundið veikindafrí.

Ég er að læra á þetta allt því ég hef aldrei tekið fullan þátt í kosningabaráttu á landsvísu, bara verið á kantinum. En í kringum mig er fullt af fólki hokið af reynslu og margt af því að læra. Kannski ætti ég að vera með skilti á brjóstinu eins og nýtt fólk í 10-11: “Starfsmaður í þjálfun”.

Til hamingju Brák!

Miðvikudagur 18. mars 2009

Ég er eins og stolt ungamamma að koma heim úr Borgarnesi. Brák - Ungir jafnaðarmenn í Borgarnesi er nú orðin að einni skrautfjöður í viðbót hjá okkur í UJ á landsvísu.

Hef eiginlega verið gjörsamlega á skallanum frá því klukkan ellefu á sunnudagsmorguninn. Í verkefnum fyrir Unga jafnaðarmenn og þess háttar, ekki brennivíni. Og NB var ég ekki einu sinni á skallanum á laugardagskvöldið. Uppgötvaði nú eftir miðnætti að ég hef ekki eina kvittunina sem ég þarf til að geta birt yfirlit yfir kostnað í prófkjörsbaráttunni hjá mér. Þarf að redda henni á morgun og tala við ykkur aftur. Gróft áætlað gætum við verið að tala um kannski 360.000 krónur samtals sem er nokkuð vel sloppið. Stærsti kostnaðarliðurinn er þessi sameiginlegi pottur frambjóðenda: 50.000 fyrir að taka þátt, 50.000 fyrir að vera með í sameiginlegri póstsendingu með efni frá frambjóðendum og svipuð upphæð í dreifiritið mitt sem fór í þá sendingu. Ég er búin að safna svolítið upp í þetta en er að vinna í því áfram og get því ekki birt yfirlit yfir velvildarfólk mitt alveg strax. Fylgist með.

Í bláhorninu

Þriðjudagur 17. mars 2009

Ég er á Kaffitár. Var mætt hérna uppúr hálfátta ásamt Vigdísi vinkonu samkvæmt plani um tilraunaviku þar sem dagarnir hefjast klukkan hálfátta í sameiginlegu kaffi. Nema ég tók mér óvart sæti “í Bláhorninu” eins og mér hefur verið bent á af u.þ.b. tíu herramönnum sem sitja hér allt í kringum mig sem er orðin ein eftir. Það var ákveðið að ég myndi ekki færa mig. Ég er svo hugguleg. Við erum að fara yfir hvernig ráðist hefur verið á íslensku krónuna.

Önnupálubarmmerkin - tímalaus klassík

Mánudagur 16. mars 2009

Það var skrýtið þegar laugardagskvöldið nálgaðist og ég átti að heyra úrslitin í prófkjöri. Spennan talsverð - seinnipart þessa lokadags í prófkjörinu var tilfinningin svipuð og þegar ég átti að keppa í Gettu betur í sjónvarpi í fyrsta skipti. Nema þá var málið klárað á einni klukkustund. Þetta tók lengri tíma og smá skapsveiflur sem fylgdu því að vera lengi framan af í áttunda sæti en detta niður í tíunda við síðustu tölur þegar blessuð pappírsatkvæðin höfðu verið talin. Hafði svosem búist við að þetta gæti gerst - ég er ung og á eftir að kynnast eldra fólkinu í flokknum. Næg tækifæri til þess framundan.

Uppgötvaði áðan að úrslit í prófkjöri voru birt þann 14. mars. Nákvæmlega mánuði fyrr eða 14. febrúar tók ég ákvörðun um að ég ætlaði í prófkjörið.  Brá við þetta - mánuður er greinilega langur tími í pólitík. Líklega hefði verið betra fyrir framann að hafa ákveðið sig með lengri fyrirvara og plana vel baráttuna af því prófkjör er alveg ofsalega mikil vinna. Þá kem ég niður á flókið mál sem er togstreitan á milli þess að vilja taka þátt í pólitík og vera pólitíkus með öllu sem því fylgir. Ég veit ekki hvort fólk skilur muninn á þessu tvennu, eins og ég sjálf hef tilhneigingu til að flokka þetta og er ekki endilega rétt.

En ég hef nægan tíma til að pæla í þessu þegar kosningabaráttan er búin! Mjög spennt fyrir að hella mér í hana og undirbúningurinn er auðvitað löngu byrjaður jafnt hjá Ungum jafnaðarmönnum og Samfylkingunni. Vorum að fara aðeins í gegnum kosningabaráttuna hjá mér áðan, ég og Pétur Ólafsson klettur og fundum út að í fyrsta lagi nýtast barmmerkin mín sem tímalaus klassík af því á þeim stendur bara Anna Pála. Hins vegar nýtast dreifiritin mín líka af því ég sagðist vilja fimmta sætið og vil það ennþá ef það verður í boði! Fimmta sæti er baráttusæti Samfylkingarinnar í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og við höfum allt að vinna.

Að lokum vil ég segja frá því að á morgun birti ég yfirlit yfir kostnaðinn í þessu prófkjöri.

Svo vil ég segja þúsund þakkir við öll þau sem studdu mig á einhvern hátt.

Fraubært

Föstudagur 13. mars 2009

Það er allt að gerast í prófkjörinu nú þegar sólarhringur er eftir! Ég hlakka til að heyra úrslitin annað kvöld - ekki laust við smávegis spennuskjálfta. Á þessum seinustu metrum datt ég loksins inn sem Eyjubloggari og þar má lesa þessa færslu, svo ég spari ykkur nú tennisúlnliðinn:

Já góðan daginn! Af einskærri tilviljun er loksins komið að sjálfri mér í þeirri löngu biðröð fólks sem vill skrifa Eyjublogg. Þetta er skemmtilegt í ljósi þess að daman er í prófkjöri sem klárast ekki fyrr en klukkan sex annað kveld.

Ég hef oft verið iðin við að blogga en af einhverjum ástæðum lagði ég þann starfa á hilluna í ágúst eftir að ég kom heim úr Palestínuferð. Bara nennti þessu ekki þegar ég dvaldi langdvölum í Kaupmannahöfn í haust. Var reyndar heima á milli og notaði tækifærið til að gerast spámaður í eigin föðurlandi. Segi betur frá Danmörkinni síðar - held ég sé að komast á bragðið aftur með að blogga nú þegar íslenskt raunveruleikasjokk er að breytast í íslenskan hversdagsleika.

Kíkið annars endilega á framapotssíðuna mína (innskot - hér var ég að tengja á síðuna sem þú ert að lesa núna, svo við skulum ekki fara í neinu hringi og sleppa hlekknum). Þetta er mjög flott síða og ég hef verið að blogga þar síðustu daga. Takk og bless, ég er farin að hringja í fólk til að athuga hvort það vill ekki kjósa mig í þessu prófkjöri.

Fleiri kjósendur, takk

Fimmtudagur 12. mars 2009

Þessi færsla er ekki bara persónuleg auglýsing þess frambjóðanda sem þetta skrifar. Ég mæti það reyndar mikils ef margir kjósa sjálfa mig en vildi bara vekja athygli á því að góður meirihluti þeirra sem eru á kjörskrá hjá Samfylkingunni í prófkjöri á eftir að kjósa. Koma svo!

Annars er þetta fína myndband komið hér á hægri kantinn. Endilega hlusta á það. Ég hef sjálf þurft að gera það nokkrum sinnum. Alltaf sami aulahrollurinn að hlusta á sjálfa sig. Þess má geta að orðið skuldahalasveppasúpa var ekki í handritinu frekar en orðalag á mörgu sem þarna kemur fram. Fyrst tókum við eitt skot sem var í einu orði sagt hræðilegt fannst mér. Ég var stíf og stressuð, úr karakter að reyna að segja eitthvað sem ég hafði skrifað niður. Þökk sé dásamlegri konu tókst að koma mér til sjálfrar mín aftur og taka tvö gekk bara glimrandi.

Ef maður hefði nú alltaf tvær tökur í lífinu.

Úr klósetti á Gatwick í prófkjör í Reykjavík

Þriðjudagur 10. mars 2009

Ég er lasin í dag og ekki sérstaklega ánægð með þá stöðu mála! Þurfti að afboða mig á skemmtilega og mikilvæga fundi í Háskóla Íslands og í kosningamiðstöðinni okkar niðri á Skólabrú. Ég sem hef ekki orðið lasin í svo langan tíma. En þetta er svona. Tók reyndar marga símafundi í dag, litla og stóra og ég held að símtækið sé orðið jafn þreytt og ég sjálf þegar þetta er skrifað klukkan hálfellefu.

Annars er sagan af þessu símtæki frekar skemmtileg. Einu sinni sem oftar hvarf farsíminn minn um daginn (þeim hefur verið stolið af mér áður eða týnst - þessi varð eftir í sætisvasa í flugvél og skilaði sér ekki aftur). Ég var ennþá að bíða eftir námslánum haustannar. Þau skiluðu sér um miðjan febrúar, takk fyrir! Þetta þýddi að um það leyti sem ég tók ákvörðun um framboð var ég að fara yfir um af fjárhagsáhyggjum. Ekki við LÍN að sakast svosem, heldur var ástæðan að ég var í skiptinámi við Kaupmannahafnarháskóla í haust og skriffinnska tók langan tíma. En þetta gerði semsagt að verkum að ég er mjög heit í því máli að námslán þurfi að greiða út mánaðarlega og afnema yfirdráttarkúltúrinn.

Allavega - sagan af símanum. Mín kæra vinkona Dagga lánaði mér gamla símann sinn. Hún fór vel yfir með mér að hann væri nú orðinn gamall í hettunni og gæti átt til að láta illa en myndi duga mér í einhverja daga. Við rifjuðum upp söguna af því þegar Dagga sendi tölvupóst þar sem hún sat á Gatwick-flugvelli í London og hafði orðið fyrir því óhappi að missa umræddan síma í klósettið. Ég orgaði af hlátri yfir þessum tölvupósti. En það er skemmst frá því að segja að þessi sími var þurrkaður, hreinsaður og notaður og hefur staðið sig með eindæmum vel í baráttunni.

Þú getur kosið í dag!

Mánudagur 9. mars 2009

Kapphlaupið er opinberlega hafið. Ég myndi reyndar frekar líkja þessu við boðhlaup þar sem liðsheildin skiptir máli, það er meira í anda jafnaðarmanna. Við þurfum að stilla upp sterkri heild sem verður lítið mál af því það er svo mikið af flottu fólk í framboði.

En semsagt: Þau sem eru á kjörskrá í Reykjavík geta frá og með núna kosið í netkosningunni. Ekki gleyma að kjósa elskurnar! Hérna eru leiðbeiningar um hvernig skal bera sig að.

Þegar þetta er skrifað sit ég á Kaffitár og gott ef ég er ekki búin að renna niður einum kaffi latte - aðalsmerki vinstrisinnaða umhverfissinnans sem þar að auki býr í 101 Reykjavík eins og stendur. Helga vinkona mín sem hringdi af miklum eldmóði í mögulega kjósendur í allan gærdag átti einmitt spjall um búsetumál mín við mann nokkurn. Hann taldi öll tormerki á því að kjósa frambjóðanda sem hefði valið að flytja nýlega í þetta mekka draumóranna og það hjálpaði lítið að Helga benti á mína mjög svo fjölbreyttu ferilskrá í búsetumálum. Vonum að hann hafi getað sofið vel á þessu.

Sjáumst í Iðnó kl. 12 í dag, laugardag!

Laugardagur 7. mars 2009

Jæja. Hlakka mjög til að sjá öll í Iðnó kl. 12 á morgun, þau sem vettlingi geta valdið og öll hin. Sjálf hlakka ég sérstaklega til frumsýningar stuttmyndarinnar “Maðurinn sem varaði við” auk þess auðvitað að heyra fullt af ferskum hugmyndum þegar allt þetta unga fólk kemur saman til að hugsa.

Þetta var skemmtilegur dagur. Smá babb kom reyndar í bátinn eftir át á spirulina-þaratöflum sem munu eiga að auka manni þrek en fóru þveröfugt í frambjóðandann.

Ég fór á fund í spennandi nýstofnuðum starfshópi iðnaðarráðherra um atvinnumál stúdenta þar sem ég er formaður. Mjög krefjandi og mikilvægt verkefni að stuðla að því að fleiri stúdentar fái vinnu í sumar. Skrifa meira um það seinna og vil endilega heyra hugmyndir frá fólki í annapalas hjá gmail punktur com. Það sem við þurfum að gera er að velta öllum steinum við; nota hugmyndaflug, sköpunargáfu og verkvit til að gera mikið úr litlu í tímabundnum verkefnum auk þess sem við viljum auka möguleikana á að nýta tímann til að flýta sér í námi í sumar fyrir þau sem verða ekki að vinna.

Já og svo fór ég tvisvar í upptökur í dag - m.a. í Hugsprettu, þátt um nýsköpunarmál á ÍNN þar sem við Erla Ósk frambjóðandi hjá Sjálfstæðisflokknum ræddum nýsköpunarmál af svo miklum ákafa við þáttastjórnendurna Andra og Stefaníu að 25 mínútur liðu jafn hratt og 2 sekúndur. Ægilega gaman.

Ungt fólk og Samfó

Föstudagur 6. mars 2009

Anna Dröfn, málefnastýra Ungra jafnaðarmanna, femínisti og snillingur, minnti mig á það í símann um hálftólfleytið að fara ekki of seint að sofa. Ég fylgist með blogginu þínu og sé hvað þú ert að gera, sagði hún jafnframt. En ég sný á hana með því að það er ekki klukka á þessu bloggi. Þurfti að vinna smá vinnu áður en ég fer að sofa - það er meira en segja það að bæta á sig eins og einu prófkjöri.

Á laugardaginn er svo framundan stórviðburður hjá okkur í UJ sem hefst kl. 12 í Iðnó. Ég er jafnaðarmaður var fyrst haldið í fyrra og heppnaðist snilldarvel. Núna ætlum við að fá eins marga að borðinu og hægt er til að hjálpast að við að hugsa um hvernig við getum haldið ungu fólki í þessu landi.

Og talandi um unga fólkið. Gallup-könnunin sem birtist í kvöld var alls ekki nógu góð fyrir Samfylkinguna í aldurshópnum undir þrítugu. Þar mælumst við með helming (já!) þess fylgis sem VG hefur og minna en Sjálfstæðisflokkurinn.

Ég er sannfærð um að við munum ná okkur upp og getum gert jafn góða hluti og Samfylkingin gerði í kosningunum 2003 gagnvart yngsta hópnum. En til þess er líka mikilvægt að flokkurinn sýni að hann treysti yngra fólki. Um daginn fundum við stuðningsmennirnir út að ég er eini frambjóðandinn undir fertugu í Reykjavíkurprófkjörinu. Af þessari ástæðu - einni af mörgum - er ég sannfærð um að Samfylkingin þurfi mig í þingsæti í Reykjavík.

Góða nótt!

« Fyrri færsla